|
Komdu í verslunina okkar í Bíldshöfða 18 eða hringdu í síma 567 6020.
Við tökum ávallt vel á móti þér og tryggjum að þú fáir það sem þú leitar eftir, á besta mögulega verði.
Opnunartími:
mán - fös: 8.00 til18.00
Lau: 10.00 til 14.00
Um fyrirtækið
Fyrirtækið AB-varahlutir var stofnað árið 1996 og sérhæfir það sig í sölu bifreiðavarahluta þar sem áhersla er lögð á að bjóða gæðavottaða vöru. Fyrirtækið hefur frá upphafi verið staðsett að Bíldshöfða 18, Hamborgarabúlla Tómasar er við hliðina á okkur í næsta húsi fyrir neðan Húsgagnahöllina. Að sögn Jóns S. Pálssonar, eiganda AB-varahluta, er markmið fyrirtækisins að vera með gott úrval bifreiðavarahluta og er kjörorð þeirra: Betri vara - betra verð. AB-varahlutir hafa lagt áherslu á að þjónusta bifreiðar sem framleiddar eru í Asíu og Evrópu eða þær tegundir sem algengastar eru hér á markaðnum.
AB-varahlutir bjóða upp á gott úrval boddí-hluta, ökuljósa og spegla sem og slithluti, t.d. hemlahluti, stýrishluti, spyrnur, hjólalegur, fjöðrunar-gormar, demparar, öxulliði, öxulhosur, reimar og kúplingssett. "Okkar aðalsmerki er að eiga hlutina til á lager en í þeim tilfellum sem svo er ekki þá tekur það aðeins um 14 - 21 daga að útvega hlutina á sama verðinu þar sem allir okkar birgjar eru innan Evrópu.
Eins og áður sagði leggja AB-varahlutir áherslu á að bjóða gæðavöru á betra verði og eru allar vörur sem fyrirtækið selur gæðavottaðar með ISO-staðli. Fyrir utan að vera orðnir stærstir á eftirmarkaði í sölu boddíhluta selja AB-varahlutir almenna bifreiðavarahluti þar sem þekkt og örugg vörumerki eru höfð í fyrirrúmi. Fyrirtækið hefur frá upphafi haft í sölu alla (original) varahluti fyrir Toyota-bifreiðar þangað til í Mai 2009. Nú er áherslan lögð á allar helstu varahluti í flestar tegundir bifreiða frá okkar birgjum.
Birgjar AB-varahlutir fyrir boddíhluti eru Van Wezel í Belgíu og Klokkerholm í Árósum í Danmörku. Klokkerholm er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Evrópu og eru þeir mjög stórir í framleiðslu ryðbætingarstykkja. Birgjar fyrir slithluti er fyrirtækið First Line sem er staðsett rétt fyrir utan London og er mjög umfangsmikið á breska markaðnum.Gormarnir koma frá CS Germany og dempararnir frá Viktory á Ítalíu.
Kúplingar og bremsudiskar koma beint frá framleiðandanum National sem einnig er í Bretlandi. AB-varahlutir flytja jafnframt inn grillgrindur frá þýska fyrirtækinu ANTEC en þeir framleiða mikið af aukahlutum fyrir jeppa og pick-up bifreiðar. Hjá ANTEC eru gæði sett ofar öðru og eru aukahlutir frá þeim þeir vönduðustu sem fást.
Perurnar koma frá Ringautomotive sem er breskur perurisi og bjóða uppá góð verð og gott úrval.Svo eru fleiri litlir birgjar fyrir ýmsar vörur.
Fyrirtækið hefur ávallt lagt upp með að veita persónulega þjónustu og hefur byggt upp traustan hóp viðskiptavina. AB-varahlutir þjónusta hvort heldur sem er bifreiðaverkstæði og almenning og hafa það að markmiði að vera ávallt "bestir í þína þágu".
AB varahlutir ehf.
Kt. 691096-2899
Bíldshöfða 18 - 110 Rvk
s. 567 6020
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Banki: 0324-26-2696
|